Miðvikudagur 07. júlí 2010 / 22:14 / Ekkert að gerast!
Hérna gerist bara ekkert...engar heimildir skráðar lengi:) En það er samt sem allt að gerast á heimilinu. Við mæðgin erum nýkomin aftur suður eftir að hafa verið í um 3 vikur á norðurlandinu í sól og blíðu nánast allan tímann. Það er alltaf svo dásamlegt að komast norður og það er svo ljúft að vera á Hauganesinu.
---
En það sem er að frétta af litlu fjölskyldunni er að Ragnar Númi greindist með mjólkur og eggja-ofnæmi þannig að allt slíkt er á algjörum bannlista hjá honum allavegana í ár eða svo og síðan þurfum við bara að sjá til hvort að hann vaxi ekki bara upp úr þessu sem hann vonandi gerir. En þar sem hann er ennþá á brjósti þá má ég heldur ekkert borða sem inniheldur mjólk eða egg og það er heldur strembnara. En ég ákvað strax að láta þetta ekkert trufla mig og finna bara aðrar leiðir. Þannig að ég baka nánast allt það sætabrauð sem við borðum hérna á heimilinu og það er bara alls ekkert verra en hitt:) og af því að ég fékk svo flotta hrærivél frá bóndanum í 30 ára afmælisgjöf þá auðveldar það verkið mér alveg helling:)
---
Síðan eignaðist ég litla systir fyrir skemmstu. Mamma og pabbi fengu sér nefnilega litla Griffontík sem heitir Hilda og hún unir sér ekkert smá vel þarna hjá þeim og hún var alveg yndisleg við Ragnar Núma. Það er bara eitthvað svo notarlegt við það að heyra hljóðið í parketinu þegar litlar hundafætur eru að trítla á því.
---
Júlí er núna rétt að byrja og veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska ennþá. Lok maí og byrjun júní - eða mest allur júní - voru alveg frábærir veðurfarslega séð. Ég er nú samt að vona að það verði líka gott veður núna í júlí og ágúst svo ég geti notið fæðingarorlofsins ennþá betur.
---
jæja læt þetta gott heita í bili en ef menn sakna þess að lesa blogg þá er alltaf hægt að skoða síðuna hans Ragnars Núma - ég er nú að reyna að vera duglegri við að skrifa fréttir þar inn. Annars þá bara sjáumst við á Facebook !
0